Persónuvernd á gagnavef Fiskistofu
Upplýsingar um vinnslu Fiskistofu á persónuupplýsingum við notkun gagnavefsins.
Þessi yfirlýsing lýsir þeirri vinnslu persónuupplýsinga sem er sértæk fyrir gagnavef Fiskistofu — innskráningu, vafrakökum, gögnum sem geymd eru í vafranum og aðgerðaskráningu. Hún kemur til viðbótar almennri persónuverndarstefnu Fiskistofu, sem gildir að öðru leyti um vinnslu stofnunarinnar á persónuupplýsingum. Sjá almenna persónuverndarstefnu Fiskistofu.
Fiskistofa (kt. 660892-2069), Borgum við Norðurslóð, 600 Akureyri, ber ábyrgð á vinnslu persónuupplýsinga á þessum gagnavef. Fyrirspurnum um persónuvernd má beina á netfangið personuvernd@fiskistofa.is eða í síma 569 7900.
Nánar um persónuvernd á gagnavef Fiskistofu
Yfirlýsingin á við gagnavef Fiskistofu. Innskráning á „Mínar síður“ fer fram í gegnum innskráningarþjónustu Ísland.is, sem annast auðkenningu notenda. Um vinnslu persónuupplýsinga hjá Stafrænu Íslandi gildir persónuverndarstefna Ísland.is. Þessi yfirlýsing tekur til þeirrar vinnslu sem fer fram hjá Fiskistofu þegar innskráningu er lokið.
Við innskráningu fær Fiskistofa nafn og kennitölu þess sem skráir sig inn, ásamt tæknilegum upplýsingum sem staðfesta innskráninguna. Ef notandi kemur fram fyrir hönd annars aðila fær Fiskistofa einnig upplýsingar um þann aðila og tegund umboðs. Upplýsingarnar eru notaðar til að staðfesta aðgang og ákvarða hvaða gögn notandinn hefur heimild til að sjá.
Ef starfsmaður Fiskistofu aðstoðar notanda getur hann, að uppfylltum skilyrðum, skoðað upplýsingar viðkomandi aðila; nafn og kennitala þess aðila eru þá geymd í innskráningarlotu starfsmannsins. Innskráningarlotan er geymd í dulkóðaðri vafraköku og rennur út eftir eina klukkustund; að því loknu þarf viðkomandi að skrá sig inn aftur.
Vefurinn notar eingöngu nauðsynlegar vafrakökur fyrir innskráningu og öryggi. Engar greiningar- eða markaðskökur eru notaðar.
| Vafrakaka | Tilgangur | Tegund | Gildistími |
|---|---|---|---|
| __Host-session | Geymir dulkóðaðar upplýsingar sem þarf til að viðhalda innskráningarlotu. | Nauðsynleg | Rennur út eftir 1 klukkustund |
| __Host-ias-txn | Geymir tímabundnar upplýsingar sem þarf til að ljúka innskráningu á öruggan hátt. | Nauðsynleg | Rennur út eftir 10 mínútur |
Útlitsstillingar, svo sem birtingarmáti taflna, fjöldi raða á síðu, litaþema og staða hliðarvalmyndar, eru geymdar staðbundið í vafra notanda.
Ef notandi velur stillinguna „Muna síðasta skip“ man vefurinn hvaða skip og fiskveiðiár hann var síðast að skoða. Næst þegar notandi opnar skipasíðuna birtist sama skip og fiskveiðiár sjálfkrafa. Upplýsingarnar eru aðeins vistaðar tímabundið í vafra viðkomandi.
Fiskistofa skráir upplýsingar um beiðnir til kerfisins í öryggis- og rekjanleikaskyni. Þar á meðal eru tímasetning, aðgerð, niðurstaða, svartími, IP-tala og upplýsingar um vafra og stýrikerfi. Þegar notandi er innskráður er auðkenni hans einnig skráð. Takmarkaðir hlutar beiðna, svara og villuboða kunna að vera varðveittir eftir að viðkvæmar upplýsingar hafa verið felldar brott.
Fiskistofa er afhendingarskyldur aðili samkvæmt lögum nr. 77/2014 um opinber skjalasöfn. Skjölum og gögnum sem falla undir varðveisluskyldu er ekki eytt nema heimild til þess sé fyrir hendi samkvæmt lögunum eða reglum settum á grundvelli þeirra. Aðrar upplýsingar sem tengjast notkun gagnavefsins og falla ekki undir varðveisluskyldu eru aðeins varðveittar eins lengi og nauðsynlegt er miðað við tilgang vinnslunnar, eðli upplýsinganna og aðstæður að öðru leyti.
Aðgangur að upplýsingunum er takmarkaður við þá starfsmenn Fiskistofu sem þurfa á honum að halda vegna starfa sinna við öryggi og eftirlit.
Við núverandi notkun gagnavefsins kann að vera unnið með persónuupplýsingar í tengslum við:
- Öryggi og aðgerðaskráningu, svo sem til að tryggja öryggi gagnavefsins og skrá aðgerðir þegar þess er þörf.
Þegar innskráning á gagnavefinn verður tekin í notkun verður einnig unnið með persónuupplýsingar í eftirfarandi tilgangi:
- Auðkenning og aðgangsstýring – til að staðfesta hver notandinn er og tryggja að hann hafi aðeins aðgang að þeim upplýsingum og aðgerðum sem hann hefur heimild til.
- Birting upplýsinga – til að sýna notanda þær upplýsingar sem hann hefur heimild til að sjá.
- Umboð – til að staðfesta heimild notanda til að koma fram fyrir hönd annars einstaklings eða lögaðila.
- Þjónusta og aðstoð – til að starfsfólk Fiskistofu geti, eftir því sem þörf krefur, veitt notendum aðstoð vegna notkunar gagnavefsins.
Vinnslan byggir á 3. og 5. tölulið 9. gr. laga nr. 90/2018 um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga, sbr. lög nr. 36/1992 um Fiskistofu. Nánari lýsingu á lagagrundvelli, varðveislu og viðtakendum er að finna í almennri persónuverndarstefnu Fiskistofu.
Notendur eiga rétt á upplýsingum um þær persónuupplýsingar sem Fiskistofa vinnur með um viðkomandi, aðgangi að þeim og leiðréttingu rangra upplýsinga. Réttur til eyðingar persónuupplýsinga á aftur á móti ekki við um vinnslu stjórnvalda á persónuupplýsingum þar sem þeim er skylt samkvæmt lögum um opinber skjalasöfn að varðveita allar upplýsingar sem þeim berast. Notendur geta nýtt rétt sinn með því að senda erindi á netfangið personuvernd@fiskistofa.is.
Fiskistofa hefur skipað persónuverndarfulltrúa sem veitir ráðgjöf og fylgist með því að farið sé að persónuverndarlögum. Hafa má samband við fulltrúann í gegnum netfangið personuvernd@fiskistofa.is.
Telji notandi að vinnsla Fiskistofu á persónuupplýsingum samrýmist ekki lögum er unnt að leggja fram kvörtun til Persónuverndar. Nánari upplýsingar um kvörtunarferlið er að finna á personuvernd.is.
Yfirlýsingin var síðast uppfærð 01.10.2026. Verulegar breytingar verða kynntar á gagnavefnum.